
Gítarsmíði – Fiðlusmíði – Gítarviðgerðir
Á þessari vefsíðu getur að líta kynningu á starfi og reynslu Eggerts Más, sem er fyrsti menntaði gítarsmiður Íslands. Eggert Már smíðar gítara og fiðlur, allt eftir óskum hvers og eins. Hann gerir einnig við öll hugsanleg strengjahljóðfæri. Eggert hefur 18 ára starfsreynslu sem gítarsmiður og hafa hljóðfæri hans, jafnt gítarar sem fiðlur, ratað um víða veröld og hlotið mikið lof fagmanna á þessu sviði.
